miðvikudagur, júlí 31, 2002

Stálfák, smástrák....

Væri þá skömminni skárra ef þú gætir fengið þér fák úr timbri - lumberhorse eða timburpungkremjara.

Note-to-self: Everyone has a bare back unless he has a brother.

þriðjudagur, júlí 30, 2002

Herrann virðist hafa stofnað bandalag til höfuðs mér með teiknimyndapersónu.

Lukkulegur!

Áreiðanlegar heimildir herma að sést hafi til Herrans í hádeginu að ,,plotta" með allra þjóða kvikindum.
Bött æ vónt sörrender!

Nú þarf maður að ná sér í sinn eigins her og leiðrétta þennan ranga misskilning.

Það eru annarlegar hvatir að baki skrifum herrans.
Það er ekki nokkur spurning.

Ég sé mig nú knúna til að bregðast "ókvæða við" ásökunum herrans um meinta andlega vanheilsu.

Ég vil bara koma því á framfæri, HERRA Blümen, að ég held að ég sé ekkert verri manneskja þó ég sé ekki með hár á rassinum.


Viva la diva!

mánudagur, júlí 29, 2002

Herran hefur fundið sér nýtt áhugamál - pungkremjara.

Hann talar ekki um annað þessa dagana og frúin, sem þó er yfirleitt áhugasöm um það sem hann hefur að segja, er að gefast upp.

Þú færð þinn kremjara ef ég fæ mitt eldhússborð og stóla í stíl.

Meðan Frúin skipti um ham missti herran úr heilan dag...



Note-to-self: Mála, bara þrír dagar til stefnu.

sunnudagur, júlí 28, 2002

Hamskipti.... as we speak!

fimmtudagur, júlí 25, 2002

Þorbjörn (a.k.a. Tobbi) skildi eftir skilaboð í talhólfinu.
Sagðist vera einn af þeim sem sá bílinn minn hrynja.... af hverju var ég ekki látin vita?

Verst hún skildi vera skækja.

miðvikudagur, júlí 10, 2002

Eftir að hafa sigrað nándarkeppni Húsafellshellunnar 2002 var ærin ástæða til að fagna.
Sat því með Sólrúnu (eða Sollu litblindu eins ég kýs að kalla hana) og söng Bubba af tærri snilld.
Gaman að því!!!!

fimmtudagur, júlí 04, 2002

Til fróðleiks:
Írland er minnsta ríkið í ESB (greinilega einhver útþennsla í Lux sem við hinum vissum ekki af).

Þessi fróðleiksmoli var í boði hr. Arnalds, Eyþórs Arnalds.

Bókin með svörin
... er svo sannarlega með svörin.

Q: Er ég rokk?
A (bókin með svörin): Auðvitað.

Vegna anna í starfi hjá herr Blümen virðist stefna í að ekki verði farið í myglulegu, þ.e. sofið í tjaldi, um helgina.
Svekkelsi - eða reykelsi?
Vissulega væri gaman að eyða stundarkorni í góðra vina hópi, gæða sér á áfengum drykkjum og snæða grillmat eins og hann gerist bestur (herrann er nebblega rosalegur grillari).
Á móti kemur að sofa í rúmi en ekki grasi, steinum, gömlu gubbi, eldra pissi og vakna ekki drellusveittur að morgni.

En Travis er það í kvöld, je beibí je....