miðvikudagur, október 16, 2002

Bara smá punktur...

Ef þyngri dómar í eiturlyfjamálum leiða til þess að fólk „drepi frekar uppljóstrara" því það munar svo litlu á því að fá fíkniefnadóm og manndrápsdóm - myndi þá ekki þynging á nauðgunardómum leiða til þess að nauðgarar myndu bara drepa fórnarlömb sín, því það myndi muna svo litlu á dómnum?

Hversu böggandi er það að geta ekki pöbblissað síðuna?
Ég er búin að setja margar margar færslur - alveg eitthvað fjórar - sem bara birtast ekki.

Ekki nóg með að netið sé að bögga mig og jafnvel bara hrynja heldur er Eyvi hættur í Klassanum og ég bara ein eftir. Spurning hvort maður elt´ann ekki bara í nýja mekkað. Hann er svo tööööf.

Becks er búinn að skora markið sem hann lofaði mér í gær.
Spurning hvort Mike geri ekki slíkt hið sama.

Annars er helsta umhugsunarefni mitt þessa dagana hvort að www.hafrunk.blogspot.com standi fyrir hafrun k eða haf runk.
Ef einhver er með svör ... er ég ýkt abbó!

miðvikudagur, október 02, 2002

Ég er innherji.