Það tilkynnist að herrann er staddur í Keflavík - því skítapleisi - að sækja gamla settið. Það var ekki pláss fyrir frúna í bílnum (og nei, það var ekki af því að ég er búin að bæta á mig, heldur eru þau svo MÖRG) þannig að hér sit ég og skrifa inn í litlu húsi, enginn kemur að sjá mig.
Annars kláraðist fyrsta prófið í gær - ef próf skyldi kalla. Próftakinn, nebblega ég, komst nebblega ekki að vegna þess að kennarinn talaði nebblega svo ofsalega mikið, enda er hann sérlegur áhugamaður um feðrunarreglur (ovíjuslí). Einkunn hefur ekki verið könnuð, en allt fyrir neðan 8,5 yrði skandal...
Að öðru leyti er lífið viðburðasnautt, fyrir utan þá staðreynd að hverfisnördarnir unnu möllettana í Hellinum og ég fékk bestu pizzzzzu í heimi (takk hr. Eldsmiðja, eða hr.Ingi.R).
