sunnudagur, júní 29, 2003

22 dagar í herrann.

Brúðkaupið í gær var alveg stórfínt og skemmtilegt í alla staði.
Reyndar var það ein athöfn (í kirkjunni) sem kitlaði hláturtaugarnar fremur en annað, en það verður nú bara til þess að þetta lifi lengur í minningunni.

Samtal við herrann stuðaði frúnna þó óneitanlega, enda hljóðið ekki svo gott - eða öllu heldur ekki svo jákvætt. Frúin reyndi árangurslaust að ná aftur sambandi við piltinn, en án árangurs.
Nú er bara að bíta á jaxlinn.

föstudagur, júní 27, 2003

Jæja, frúin komin úr löns.
Kíkti á stælinn með kollega og fékk fínan burger. Alveg hreint hressandi.
Afgreiðslustúlkan olli frúnni þó hugarangri - alveg hreint að detta í sundur greyið kellingin. Vona að það rætist úr þessu hjá henni.

23 dagar í herrann.

Yet another friday. Frúin verður doldið upptekin í dag.
Þarf að fara að sækja fötin fínu í hreinsun, svo að verzzzzla brúðkaupsgjöf fyrir vinkonuna og að lokum í rækt og ljós.
Svo er aldrei að vita nema frúin kíki á næturlífið í kvöld - svona til að stytta sér stundirnar.

Helgin verður svo vonandi alveg frábær, enda spáð frábæru veðri og brúðkaupið stóra í vændum.
Det vil være saa dejligt. Mmmmmm...

Reyndar þarf frúin aðeins að rydda upp og stövsuge á heimilinu - en það verður nú ekki mikið mál, enda bara ein í heimili og annáluð fyrir snyrtimennsku og hreinlæti almennt.

fimmtudagur, júní 26, 2003

Jæja.
Nú er frúin ekki í stuði. Situr við skriftir, enda brúðkaup eftir tvo daga.
Trimmarinn tók í og líka hlaupin í kjölfarið - en ljósatíminn reddaði þessu.
2 og hálfur tími í rækt - þetta er náttlega ekki í lagi.

24 dagar í herrann - þetta er allt að koma.

Frúin fína er að gefa upp öndina sökum óþægilegra, ótímabærra og í alla staði óþarfra harðsperra.
Síðar í dag er planið að versla sér eins og eitt ljósakort/trimmform svo kroppurinn verði kominn í stand þegar herrann lætur loks sjá sig á klakanum.

B - I miss you!

Að öðru.
Frúnni var boðið til hátíðarhlaðborðs hjá kynforeldrum í gær. Var þar boðið upp á pizzu af öllu tagi og humar í eftirrétt. Mjög gott og hresandi í alla staði.
Í kvöld er stelpunni svo boðið til frænkunnar - einnar af mörgum - í sesar salat og alls kyns skemmtilegheit.
Svo þarf frúin að halda heim á leið snemma í kvöld enda fyrir höndum það magnaða verk að semja ræðu fyrir brúðkaup laugardagsins. Spennó.

Hasta la vista.

miðvikudagur, júní 25, 2003

25 dagar í herrann.

Lítið að frétta. Nema full af harðsperrum (harðar sperrur? skilitiggi).

Frúin er að leita að listaverki - má ekki kosta meira en 20.000.

Svefn frúarinnar hefur gengið frekar brösuglega undanfarið - enda ljóst að betur sofa tveir en einn.
En 25 dögum síðar mun þetta lagast svo um munar. Það er allt að gerast.

Að löngum og ströngum vinnudegi loknum ætlar frúin að taka sig til og skella sér í eitt stykki rækt eða svo. Jafnvel kíkja í ljós í leiðinni svo herrann falli örugglega killiflatur þegar þar að kemur.
Jei.

mánudagur, júní 23, 2003

27 dagar í herrann.
Frábær helgi - alveg hreint frábær.
Á föstudaginn var það grillveisla (mmmm), karíókí og fullt af áfengi - þó frúin hafi reyndar ekkert verið sérstaklega liðtæk á síðastnefndum tveimur sviðum. Tveir samstarfsfélagar mættu og spjölluðu. Mjög skemmtilegt. Frúin fékk svo, ásamt fleiri partýgestum, far í bæinn með einkennisklæddum einstaklingum - svo hagkvæææmt.
Í bænum var fámennt en einstaklega góðmennt og eftir rúnt á hverfis og ölstofunni tók frúin leigubíl heim með ónefndum skólafélaga.

Á laugardeginum fékk gæsin útreið, og líkaði vel!
Ákaflega hressandi í alla staði, fyrir utan ótakmarkaðar klósettferðir í kjölfar kvöldmats.
Aftur var það hvefis og nú hitti frúin gamla vini - Arnar Gunnlaugs, Eið, Sveppa og marga marga marga fleiri. Einnig voru þar skólafélagar í lange baner og ekki var það til að skemma stemminguna.

Það var svo þreytt frú sem fór í mat til kynforeldra á sunnudagskvöldinu.

Að lokum: Ofsalega á hún Lindsay bágt.

föstudagur, júní 20, 2003

30 dagar í herrann.
Og frúnni líður bærilega. Gærkveldið var þó tekið frekar rólega og fór að mestu í sjónvarpsgláp, svefn og netta grillun - eins gott að líta vel út fyrir brúðkaupið :)
Í kvöld er það svo karókí og öllum viðstöddum til mikillar gleði, vonandi, mun frúin hefja upp raustina eftir ca. 3 dl af áfengi. Vei.

Í ljós hefur komið að frænkan er náin fjölskylduvinur. Lítið land ha.

fimmtudagur, júní 19, 2003

8. dagurinn í herraleysi...
Hljómar ekki vel - en þó hefur frúin reynst furðuhress miðað við þetta allt saman. Svefnlausar nætur hafa enn ekki látið kræla á sér og fullskipuð dagskrá næstu vikurnar ber vott um einarðan tilgang frúarinnar að komast hjá því að vera talin ósjálfstæð og ósjálfbjarga.
Gengur bara nokkuð vel.

Gleraugun góðu eru fundin og fundarstaður var svosem ekki ólíklegur. H&M á Karl Johan. Frúin hefur sennilega tekið þau niður við mátun og gleymt að setja þau upp aftur.
En allt er gott sem endar vel og gleraugun góðu eru á heimleið með frænkunni um næstu helgi. Sem er mjög gott.

Af ÞM er minna að frétta. Lítið að gerast utan þess venjulega - arg og þvarg í símann daginn út og inn.
En alltaf er jafngaman að gleðja fólk með því t.d. að kippa út lánum hér og þar. Hver kann ekki að meta svoleiðis, sérstaklega í þessu ógeðslega veðri sem Frónverjum er boðið upp á þessa dagana. Jakk...

mánudagur, júní 16, 2003

Jæja.
Komin heim frá Noregi. Osló er flott borg, en mjög mjög mjög dýr. Frábær ferð og vel heppnuð í alla staða. Reyndar ein undantekning því að gleraugun urðu eftir. Hvar veit frúin ekki, en leit er hafin.

Annars er það helst að frúin er ákaflega einmana þessa dagana og þarf að búa sig undir að lifa með því næstu 34 dagana. En plan er í bígerð og hljómar uppkastið svo:

1. Gæsa Gæs
2. Brúðkaup
3. Kaupa og setja upp útidyrahurð
4. Tékka á parketi og skápum (penger, penger, immer penger)
5. Ekki tala við John borðherra, sem var algjör subba
6. Fantasíera um herrann minn góða
7. Útilegur x2
8. Fara í beinaskann
9. Ræktin mössuð
10. Ganga frá eftir Osló-rejsen
11. Kynna mér knugen
12. Finna gleraugun góðu

Adios.