6 dagar í herrann (og ég er enn á lífi, vá....)
Nújæja, helgin var ákaflega viðburðarík hjá frúnni, þrátt fyrir magapest og önnur leiðindi sem því fylgja (won´t go to any details)!
Á föstudagskvöldin kom Norðlendingurinn í heimsókn, brúnn og sætur og með fulla vasa af bjór.
Setið var að sumbli til hálftvö þegar SUSarinn mætti ofursprækur og tók til við sömu iðju og þeir sem fyrir voru, þ.e. sumbl. Stóð samkunda þessi til klukkan fjögur með kjaftasögum, bopitkeppni og tónlist. Mjög fjörugt og skemmtilegt í alla staði.
Föstudagurinn fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
Laugardagurinn var ekki til leiðinda, eins og mögulega var búist við af frúnni (magapestin manstu). Frúin lét það eftir sér að sofa doldið vel og lengi og naut þess hreinlega í ystu æsar að vakna ekki fyrr en um hádegi. Mmmmm...
Sjónvarpið tók svo við rúminu og sá um skemmtidagskrá til átta, en þá kom litla dýrið og sótti frúnna. Úr Breiðholtinu lá leiðin á Eldsmiðjuna, þar sem maturinn klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. Þaðan var svo haldið í Smárabíó þar sem nýjasta myndin um Charlie´s Angels hefur verið tekin til sýninga (og það er mjög þreytt og hallærislegt að kalla þetta englana hans Kalla). Myndin var að mati frúarinnar skemmtun hin besta og það var þreytt frú sem lagðist til hvílu fyrir framan imbann rétt eftir miðnætti.
Laugardagurinn fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum (aðallega af því að myndin var svo hressandi).
Nújæja, svo var það sunnudagurinn mikli (en þá var einmitt bara vika í herrann). Frúin svaf nú ekki eins vel þessa nótt eins og þá síðustu og er það mat manna að ástæða þess sé sú að ekki var boðið upp á rauðvín á laugardagskvöldið. Grundvallarmistök. Nújæja, samt sem áður var rúmið svona heitasti staðurinn til að vera á svona framundir hádegi, en þá tók við óhóflegt sjónvarpsgláp með tilheyrandi svefnpásum. Frúin reif sig þó upp fyrr en síðar og hóf hreingerningar á heimilinu - heimili sem þó var nokkuð hreint þrátt fyrir allt (svo mikill snyrtipinni). Svo lá leiðin upp í Þrastarskóg ásamt litla dýrinu þar sem litla frænkan (töluvert minni en dýrið) var heimsótt við mikla gleði gestgjafanna. Þar var boðið upp á ís og snakk og allskyns nammi og var það mjög hressandi í alla staði.
Sunnudagurinn fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum (aðallega vegna þess að frúin svaf ekki nægilega vel þarna um nóttina).