miðvikudagur, mars 31, 2004

Blindur maður að keyra í sjónvarpinu. Alveg fyndið.

sunnudagur, mars 28, 2004

Gamla setti fagnaði samanlögðu aldarafmæli í gær. Boðið var upp á góðgæti og alkóhól í ótæpilega miklu magni og sætti furðu að ekki fleiri skyldu tapa glórunni.

Í morgun fór svo frúin ásamt örverpinu í fjölskyldunni í heimsókn til öldunganna til að skoða þær gjafir sem bárust í hús og er niðurstaðan, eftir óformlega talningu, að hjúin hafi komið út í plús :) Sem er ágætt.

Annars verður snjórinn að teljast jákvæður - þá er allt svo bjart og hressandi að mati frúarinnar. Ojá, það þarf ekki mikið til að gleðja mann á þessum síðustu og verstu.

Af hnénu er það að frétta að því líður bærilega - aldrei að vita að eitthvað sé tekið til við að birta í þeirri deildinni, sem er mjög gott auðvitað.

sunnudagur, mars 21, 2004

Er skák versta sjónvarpsefni í heimi?

fimmtudagur, mars 18, 2004

Ég sat hér í hægðum mínum þegar þessi stúfur kom upp í hugann:

Daginn í dag, daginn í dag
gerði drottinn guð, gerði drottinn guð
Drottinn guð, drottinn guð
gerði daginn í dag, gerði daginn í dag.

Líklegt til vinsælda?

Rækt, löns, tími, dinner, Batchelor-kvöld.

Tími, íþróttakeppni, kokteill, dinner, tónleikar.

Læra, rækt, læra, læra.

Læra, ferming, læra, dinner.

Magnað hvað maður er eitthvað vinsæll þessa dagana.

miðvikudagur, mars 17, 2004

Ég er nú engu að síður með hjartslátt í hnénu.

þriðjudagur, mars 16, 2004

Ef þetta er ekki tíminn til að hefja blogg að nýju...

Í dag er staðan svona:

Fjögur próf á níu dögum í maí og frúin nánast ekki byrjuð að lesa.
Skilaverkefni eftir þrjár vikur og frúin ekki byrjuð að lesa.
Undirbúningsvinna fyrir ritgerð hófst formlega fyrir viku síðan en, you guessed it, frúin er ekki byrjuð á því heldur.

Úff... Þetta lítur ekki vel út.

En á léttari nótum:

Til að undirstrika hvað Ísland er mikil smáþjóð þá vil ég benda á frétt sem var á Stöð 2 um daginn. Þar var sagt frá því að Íslendingar gætu verið í mikilli hættu vegna veru þeirra á lista hinna staðföstu. En svo sagði fréttamaðurinn eitthvað á þessa leið:

,,Listi hinna staðföstu þjóða var lesinn upp í arabísku útvarpi fyrir (jara jara mánuðum síðan), en reyndar var Ísland þar ekki nefnt á nafn.

Hahahahahaha!