þriðjudagur, maí 25, 2004

Frúin var í miklu stuði í dag í golfi með herra sínum, sem var þó ekki í eins miklu stuði.

Títtnefnd frú tók þá ákvörðun í gærkvöldi, eftir að hafa eytt sólríkum sumardegi innandyra við skriftir, að taka sér frí í dag og fara í golf. Var förinni heitið á annan heimavallanna ásamt fyrrgreindum herra og ónefndum vini. Það blés ekki byrlega í upphafi fyrir frúnni og hennar spúsa. En eftir að hafa slegið nokkuð misléleg högg á fyrstu fjórum brautunum var kominn hiti í kroppinn og boltinn fékk að kenna á því. Ójá. Oftar en ekki var blessuð kúlan látin fljúga mörghundruð metra fram á við og síðan sökkt í hyldýpi holanna, en það er nú einu sinni markmiðið með leiknum.

Þegar upp var staðið hafði frúin leikið þessar 18 holur á 112 höggum. Verður að telja það ásættanlegan árangur, sérstaklega í ljósi þess að völlurinn var leikinn í fyrsta sinnið og því gerðist það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að frúin sló í átt að röngu flaggi á þessum áður ókannaða velli.

Herrann bar heldur skarðan hlut frá borði að þessu sinni, en er ákveðinn í að hefna fyrir það með tímanum. Var hann því sendur út á völl að æfa sig í kvöld, en frúin ætlar að grafa upp badminton spaðann og bregða á leik með ónefndri vinkonu í kvöld. Já, hún tekur sér margt fyrir hendur þessi frú enda með eindæmum fjölhæf.

föstudagur, maí 21, 2004

Eftir næturlanga dvöl utanbæjar og 90 mínútna heimferð í auto hvar frúin var við stjórnvölin, getur hún ekki setið á sér lengur og næstu línur geta ekki legið eftir ósagðar.

Þannig er mál með vexti að á leið sinni í gegnum lífið hefur frúin hitt nokkra einstaklinga sem hún kýs að nefna "betrisögumenn". Í góðra vina hópi eru þessir einstaklingar þeirrar náttúru að þeir geta ekki setið á sér þegar hinir auðmjúku dunda sér við að segja einhverjar mismerkilegar sögur - hinir fyrrnefndu eiga alltaf betri sögu. Þetta er náttúrulega, að mati frúarinnar, ekkert nema gjörsamlega óþolandi.

Frúin lenti einmitt í þessu um daginn, þegar hún keyrði fyrrnefndan auto til höfuðborgarinnar eftir fyrrnefnda næturdvöl í hinni margrómuðu íslensku sveitarsælu. Einn farþeganna þjáðist af "betrisögu"-heilkenninu og það var sama hversu merkileg ellegar ómerkileg saga hraut af munni annarra farþega, alltaf átti umrædd "betrisögumanneskja" betri sögu. Alveg var þetta með ólíkindum og átti frúin, sem eins og áður hefur komið fram er sérstaklega geðprúð og yndisleg, í virkilegum erfiðleikum með að sitja á strák sínum. Með miklum erfiðismunum tókst frúnni þó að bíta í vörina og missa sig ekki, þó hún hafi á leið upp hina alræmdu "Kamba" íhugað af mikilli alvöru að keyra hreinlega út af. Sennilega hefði "betrisögumaðurinn" þá sagt eitthvað á þessa leið: "Já, en ég var sko einu sinni að keyra í hæstu Ölpunum í öllum heimunum og við keyrðum útaf á miklu meiri hraða en núna og jara jara jara". Frúin vildi auðvitað ekki gera títtnefndum "betrisögumanni" það til geðs og hélt sig á veginum.

Í staðinn fyrir að missa stjórn á skapi sínu ákvað frúin hins vegar að gera eilitla rannsókn á þessu heilkenni - verandi læknavísindalega þenkjandi eftir áralanga baráttu við hina ýmsu kvilla. Brá frúin á það ráð að kanna hversu ómerkilega og ólíklega sögu þyrfti til að "betrisögumaðurinn" ætti ekki svar. Í stuttu máli má segja að frúnni hafi, þrátt fyrir allsvakalega svæsnar tilraunir, ekki tekist að stinga upp í viðkomandi. Sögur um allt milli himins og jarðar, hvort sem var um að ræða fjölda frændsystkina eða stærð táa, gat "betrisögumaðurinn" toppað með ennþá merkilegri og betri sögu um viðkomandi (ómerkilegan) hlut.

Frúnni tókst því semsagt ekki að stinga upp í viðkomandi "betrisögumann" en þið getið alveg treyst því að þótt orustan sé töpuð, er stríðið enn í fullum gangi.

laugardagur, maí 01, 2004

Það er með ólíkindum hvað geðprúð manneskja, eins og frúin (hættu að hlægja), getur misst stjórn á skapi sínu af litlu tilefni þegar prófin standa yfir.

Þannig er nú mál með vexti að frúin kýs að undirbúa sig fyrir prófin í skítugasta húsi Evrópu, eins og áður hefur komið fram. Væri það ekki frásögu færandi nema fyrir það að það virðist sem aðrir þeir, sem hér kjósa að lesa fyrir próf, átti sig ekki á því að það er erfiðleikum háð að lesa þegar fólk ræðir málin milli þess sem það svarar í gsm-síma.

Fyrir vikið hefur geðprýði frúarinnar fengið að fjúka út í veður og vind og í staðinn er upp risinn pirruskrímsli sem hefur heltekið kropp hennar. Já, þetta er magnað.