þriðjudagur, júní 01, 2004

Júní kominn. Þetta er fljótt að líða.

Frúin situr nú við skriftir og mun vera í þeim stellingum þar til sumri líkur. Það þýðir þó ekki að hún geti ekki tekið sér stutt frí af og til, svona til að sóla kroppinn og æfa sveifluna.

Hvítasunnuhelgin fór aðallega í afslöppun hjá frúnni, þó herrann hafi verið heldur iðnari og dvalið lögnum stundum í ferhyrnda gímaldinu við Sæbrautina. Í gær, annan í hvítasunnu, brugðu hjúin þó á það ráð að skella sér í kvikmyndahús (eða biffen eins og þeir segja í Danmörku). Förinni var heitið á stórmyndina "Troy" eða "Tróju" sem skartar m.a. þeim Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana. Þeir stóðu sig allir með prýði piltarnir og þótti frúnni ekki leiðinlegt að mæla út velþjálfaða líkama þeirra. Myndin sem slík var svona í bærilegri kantinum, fær tvær og hálfa af fjórum mögulegum.

Annars var aðalmálið með vefdagbókarfærslu þessari að segja skemmtisögu, en ekki endilega betri sögu. Þannig er mál með vexti að ónefndur skólafélagi frúarinnar lagði leið sína á þessa sömu mynd, það er "Troy" eða "Tróju". Fyrir aftan hann sátu mannvitsbrekkur miklar sem létu út úr sér þessi fleygu orð: "Ég vissi að þeir væru inni í hestinum". Magnað.