Þegar allt virðist ómögulegt og straumurinn þér í mót, er lítið annað að gera en taka því sem að höndum ber af æðruleysi. Í því skyni er gott að hafa í huga geðorðin 10.
1. Hugsaðu jákvætt það er léttara.
2. Hlúðu að því sem þér þykir vænst um.
3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir.
4. Lærðu af mistökum þínum.
5. Hreyfðu þig daglega það léttir lundina.
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig.
8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.
9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína.
10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast.
Og þar hefurðu það!
