laugardagur, maí 03, 2003

Ég öfunda Prag. Vildi að ég væri jafnheillandi og Karlsbrúin. Lítið hægt að gera í því núna, háöldruð og með skítugt hár.

Eitt próf búið - tvö eftir. Wish it was the other way around.

Annars er ég með miklar áhyggjur af Herranum. Hann þjáist af bakverkjum, hnjáverkjum, ökklaverjum og stórri bólu á hálsinum. Það er á svona stundum sem maður áttar sig á því hvað maður á í raun gott :)
Persónulega vantar Frúna bara eitt til að fullkomna lífið - útidyrahurð á kr. 47.875,- (það er EKKI til of mikils ætlast, er það?). Maður spyr sig.