þriðjudagur, júlí 22, 2003

Ef sá möguleiki væri fræðilega séð fyrir hendi að DREPAST úr leiðindum væri frúin ekki á lífi lengur.
Blóm og kransar afþakkaðir - sendið peninginn frekar inn á reikning nr. 515 - 26 - ToCool.

Hvað er málið með að enginn sendi frúnni póst? Anyone, anyone?

Gott veður úti - leiðinlegt inni.

Nytsamlegar tímapælingar:

155 dagar til jóla
41 dagur þangað til skólinn byrjar
82 dagar í fyrstu próftörn

Jæja. Stefnir í frekar viðburðalausan og leiðinlegan vinnudag.
Gömul "næstumþvífrænka" kíkti í heimsókn og bauð frúnni í löns. Það verður vonandi hressandi.

Dæs.

Steinn úr lunga og skel úr hné (því hægra) myndi auðvelda líf frúarinnar.

föstudagur, júlí 18, 2003

Annars var það eitt sem frúnni fannst doldið merkilegt í gær.

Eftir að hafa þurft nauðsynlega að fara niður í kjallara (vegna þess að frúin fer ekki inn í þá skítugu draslkompu nema lífið liggi við) hugsaði hún með sér hversu hentugt það væri að losna við allar þessar illalyktandi dósir og flöskur sem liggja eins og hráviði um allt geymslugólfið. Það líðu ekki nema örfáar mínútur þar til tvær liprar telpur og ca. 12. aldursári bönkuðu upp á og spurðu hvort frúin ætti dósir og flöskur til að styrkja barnaspítala Hringsins.
Frúnni var létt. Ekki eingöngu var hún þarna að losa sig við um það bil 20 plastpoka af dósum og flöskum heldur var hún um leið að styrkja alveg hreint prýðilegt málefni í leiðinni.

Og þá kom að því sem frúnni fannst doldið merkilegt.

Það hefur nefninlega gerst alloft á þeim tveimur árum rúmlega sem frúin hefur búið í íbúð sinni að þangað hafa komið unglingspiltar að safna dósum til styrktar ÍR. Málefnið er bærilegt og frúin og hennar herra hafa ætíð látið heldur mikið af hendi rakna í formi dósa og flaska.
Aldrei hefur það verið neitt sérstakt vandamál fyrir dósaogflöskuþega að koma flöskunum úr kjallaranum og upp á gang - piltarnir hafa einfaldlega fylgt frúnni niður, prúðir og spakir, og borið pokana upp einn af öðrum.
En í gær var þetta nú ekki svo einfalt. Dósaþegarnir stóðu á bak við frúna, meðan hún týndi pokana hvern af öðrum út úr geymslunni, og skeggræddu hvernig væri nú best að koma pokunum upp á gang.
Það var ekki bara svona þegjandi samþykki um að taka blessaða pokana einn af öðrum og bera þá upp, heldur þurfti að sameina poka, setja litla poka í stóran svartan sem þær voru með o.s.frv. og þetta þurfti að gerast nákvæmlega þarna í þessum þrönga geymslugangi, og helst þurfti þetta að taka svona 10 mínútur og allt upp í korter. Semsagt mjög verkfræðilegar pælingar um þetta allt saman.

Niðurstaðan er sú að það er mjög mikill munur á kvenkyns- og karlkynsdósaþegum. Strákarnir gera hlutina bara, þegjandi og hljóðalaust, og aldrei neitt vandamál. Stelpurnar þurfa hins vegar að ræða hlutina og ræða þá svo aðeins meira og helst aðeins að kíta ef það er hægt (jafnvel þó dósagjafi sé viðstaddur og nenni ekki að hlusta á tuð).

Magnað ha.

2 dagar í herrann.

Já, það er rétt - það eru bara tveir dagar þar til herrann mun spranga um grundur ævintýraeyjarinnar fögru eftir fimm vikna útlegð og rúmlega það.

Af frúnni er það hins vegar að frétta að flísalögn var reddað í gær með símtali til frænda nr. 2. Sá ætlar að redda málunum og hefur þú þegar hafið lagningu flísa í eldhúsinu góða. Jei...
Þannig að þegar frúin kemur heim um klukkan fjögur verður búið að leggja allar flísarnar (vonandi) og þá á bara eftir að fúa (sem verður gert á morgun).

Annars var nokkuð erilsamur dagurinn hjá frúnni í gær. Fyrst þurfti að redda tréplötu yfir föstu flísarnar, sem hafðist. Svo þurfti að kaupa skrúfur og nýjar innstungur og sandpappír og fleira í þeim dúr.
Síðan kom maður vinkonunnar í heimsókn og boraði. Þegar hann var að skella á eftir sér hurðinni kom frændi nr. 1 (þessi slasaði) með frænda nr. 3 (sem reyndar gerði lítið gagn). Aðeins var hafist handa við að undirbúa flísalögn enda hafði frúin nýlokið við að grunna veggina.
Nú, svo þurfti að hoppa í sturtu og þrífa sig aðeins og þá var bara klukkan alveg að verða leikhús. Nú þurfti frúin að hafa hraðar hendur við að klæða sig, blása hárið og greiða, og að lokum að spartla upp í helstu sprungur í húðinni.
Leikritið var rétt að hefjast þegar frúin mætti í salinn - uppábúin - og reyndist söngleikurinn vera hin ágætasta afþreying. Reyndar var meðalaldurinn í salnum sennilega nær 10 árum en 20 - kannski ekki eins mikil stemming - en það var í góðu lagi.

Að leikhússferð lokinni þurfti frúin að kíkja við hjá tengdó til að fá varalyklana lánaða svo frændi nr. 2 kæmist inn í húsið í dag til að flísaleggja. Þar voru góðir gestir í heimsókn - Hafnfirðingar miklir - og sat frúin þar að spjalli í nokkra stund. Svo þurfti að halda til frændans þar sem frúaramman var í miklu stuði. Kjaftaði á þeim hver tuskan og endaði með því að heimkoma var ekki fyrr en eitthvað eftir klukkan tvö. Þá þurfti að hefjast handa við að grunna umferð nr. tvö og hafðist það á örskotsstundu (enda einkar lunkin þessi frú).

Sökum þreytu gerðist það svo í morgun að frúin svaf yfir sig og mætti (reyndar bara) korteri of seint.

Eftir vinnu í dag þarf svo að halda heim á leið og jafnvel fæða þessa frændur alla saman sem eru að vinna í flísalögninni góðu.
Svo er það slender klukkan sex (frúin vill kom á framfæri að hún nennir því SVOOO ekki).

fimmtudagur, júlí 17, 2003

Abbabbabb.

Nú kom heldur en ekki babb í bátinn.
Flísarnar á minni veggnum virðast bara neita að losna af - frúnni til óblandinnar ánægju (right) - og því þarf að grípa til ráðstafana.
Húsasmiðjan fékk því símtal frá frúnni þar sem pöntuð var ein spónarplata til að leggja yfir ógeðisflísarnar. Svo var hringt í nýkrýndan eiginmann vinkonunnar sem ætalr að bora blessaða plötuna og festa hana þannig við vegginn.
Svo verður grunnað - farið í leikhús - grunnuð önnur umferð - sandpússuð málningin við hliðina á sárinu og blettað.

Gott plan ha.

Jíha!

3 dagar í herrann.

Já, frúin hefur því semsagt bara þrjá daga til að ljúka flísalögn.
Tengdafaðirinn mætti í gærkvöldi og aðstoðaði við að taka gömlu ógeðisflísarnar af eldhússveggnum. Flísarnar á steinveggnum svoleiðis flugu af og frúin fór mikinn í að fjarlægja þær. Klukkan var hins vegar orðin rúmlega 12 þannig að það var ekki í boði fyrir frúna að ljúka verkinu. En ca helmingur búinn á þeim vegg.
Hinn veggurinn, sem er tréveggur, virðist hins vegar ætla að vera meira mál, eins og reyndar spár höfðu sagt til um. Tengdó hins vegar sagði þetta nú ekki mikið mál og ætlar að fara í frúarhús í hádeginu og klára málið. Það er frábært.
Þá getur frúin komið heim eftir vinnu og spartlað (spasssslað) í holurnar sem myndast eftir skrúfjárnið sem notað er til að fjarlægja flísarnar. Það er reyndar möguleiki á því að tengdó reddi því og ef svo er þá getur frúin tekið til við að grunna þegar heim er komið.
Svo er það reyndar Grease í kvöld þannig að sennilega verður henni ekki mikið meira úr verki það kvöldið.

Nújæja, stefnan er þá semsagt sett á að ná að klára að grunna í kvöld og þá ætti flísalögn að geta hafist á morgun, föstudag. Frændinn mun að sjálfsögðu verkstýra þessu öllu saman og sjá um að skera flísarnar niður í rétta stærð.

Spændende að sjá hvort að þetta mun hafast fyrir sunnudag :)

miðvikudagur, júlí 16, 2003

Þetta flísamál ætlar nú að reynast meira vandræðamál en frúin hafði búist við.

Fyrst fékk hún þau fyrirmæli að kaupa fúur í ákveðinni verslun, en það gleymdist að segja að maður þarf að kaupa kýtti á sama stað og því þarf frúin að gera sér aukaferð alveg lengst út í rassgat að kaupa það.
Það sem var þó jákvætt við daginn voru kaupin á sjálfum flísunum, sem eru alveg rosalega flottar - fagurbláar og óreglulegar í laginu (sem getur reyndar valdið vandamálum). Ekki nóg með að flísarnar væru flottar heldur tókst frúinni að blikka sölumanninn með þeim magnaða árangri að hún fékk flísar, lím, krossa og pensil á 10.000 kr. sem er alveg 5.000 undir budgeti - sem er mjög gott.

En svo var komið að svekkelsi dagsins.
Eftir að hafa ítrekað og árangurslaust reynt að ná í frændann síðan klukkan 15.00 í dag, brá frúin á það ráð að hringja í hans foreldarhús hvar pilturinn var, sárþjáður eftir vinnuslys. Þetta óhapp mun sennilega setja strik í áætlanir frúarinnar um að ná að flísaleggja fyrir sunnudag. Nú þarf hún að gera þetta sjálf undir handleiðslu frændans og það verður gaman að sjá hvernig það kemur til með að ganga :)

Nújæja, það þýðir ekkert að gráta Björn bónda heldur verður að safna liði. Og það er akkúrat það sem frúin hefur nú gert. (Sím)Tólið var tekið upp með hraði eftir að þessar fréttir komu henni til vitundar og tengdó ætlar að koma henni til aðstoðar að einhverju leyti (vonandi). Hann ætlar að minnsta kosti að aðstoða við að losa gömlu ógeðisflísarnar, en það getur nú víst verið þrautinni þyngri.
En það sem gæti ennfremur sett strik í reikning frúarinnar er sú staðreynd að þessi sami tengdafaðir er sennilega á leið í sveitarsæluna á morgun. Hmmmmm...

Jæja, nú er bara að taka á því. Ekkert rugl.

4 dagar í herrann.

Jaså, það er bara alveg að gerast.
Plan kvöldsins er að fá frændann í heimsókn til að kíkja á eldhússflísar, sem frúin ætlar að vera búin að versla. Að mörgu þarf að huga þegar flísar eru keyptar og ýmislegt fleira bættist á innkaupalístann eftir samtal við frændann. Má þar nefna lím og fúgur, grunn og krossa, kítti og bjór. Mjög hressandi alveg.

Semsagt í hádeginu er planið að kíkja í Húsasmiðjuna og Byko - tékka á verðum. Svo eftir vinnuna er það Vídd og jafnvel Harðviðarval, hafi leitinni ekki lokið þá þegar.
Fúurnar verður maður víst að kaupa í flísabúðinni að Höfðabakka því þær eru víst dekkstar og flottastar þar (þýðir lítið að hafa þær mjög ljósar í eldhúsinu).

Frúin krossar putta og vonar innilega að frændanum takist að hefja niðurrif í kvöld (miðvikudag) því það er víst meira en að segja það að rífa niður svona flísar sem eru fyrir (ljótar og skítugar sem þær eru).
Svo þarf víst að nota einn dag í að líma þær upp, næsta dag í að fúa og svo bara bíða eftir að það þorni allt saman. Þá ætti þetta að vera orðið frekar fínt, hmmm.

En að öðru leyti er lítið títt af vesturvígstöðvum. Stefnan var reyndar sett á ræktina í dag, en sökum ofþreytu í meiddulöppinni og komu frændans hefur þeirri heimsókn verið frestað ótiltekið.

Á morgun er svo komið að því að frúin skelli sér á Grease. Það verður örugglega mikið stuð.

mánudagur, júlí 14, 2003

6 dagar í herrann (og ég er enn á lífi, vá....)

Nújæja, helgin var ákaflega viðburðarík hjá frúnni, þrátt fyrir magapest og önnur leiðindi sem því fylgja (won´t go to any details)!

Á föstudagskvöldin kom Norðlendingurinn í heimsókn, brúnn og sætur og með fulla vasa af bjór.
Setið var að sumbli til hálftvö þegar SUSarinn mætti ofursprækur og tók til við sömu iðju og þeir sem fyrir voru, þ.e. sumbl. Stóð samkunda þessi til klukkan fjögur með kjaftasögum, bopitkeppni og tónlist. Mjög fjörugt og skemmtilegt í alla staði.
Föstudagurinn fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum.

Laugardagurinn var ekki til leiðinda, eins og mögulega var búist við af frúnni (magapestin manstu). Frúin lét það eftir sér að sofa doldið vel og lengi og naut þess hreinlega í ystu æsar að vakna ekki fyrr en um hádegi. Mmmmm...
Sjónvarpið tók svo við rúminu og sá um skemmtidagskrá til átta, en þá kom litla dýrið og sótti frúnna. Úr Breiðholtinu lá leiðin á Eldsmiðjuna, þar sem maturinn klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. Þaðan var svo haldið í Smárabíó þar sem nýjasta myndin um Charlie´s Angels hefur verið tekin til sýninga (og það er mjög þreytt og hallærislegt að kalla þetta englana hans Kalla). Myndin var að mati frúarinnar skemmtun hin besta og það var þreytt frú sem lagðist til hvílu fyrir framan imbann rétt eftir miðnætti.
Laugardagurinn fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum (aðallega af því að myndin var svo hressandi).

Nújæja, svo var það sunnudagurinn mikli (en þá var einmitt bara vika í herrann). Frúin svaf nú ekki eins vel þessa nótt eins og þá síðustu og er það mat manna að ástæða þess sé sú að ekki var boðið upp á rauðvín á laugardagskvöldið. Grundvallarmistök. Nújæja, samt sem áður var rúmið svona heitasti staðurinn til að vera á svona framundir hádegi, en þá tók við óhóflegt sjónvarpsgláp með tilheyrandi svefnpásum. Frúin reif sig þó upp fyrr en síðar og hóf hreingerningar á heimilinu - heimili sem þó var nokkuð hreint þrátt fyrir allt (svo mikill snyrtipinni). Svo lá leiðin upp í Þrastarskóg ásamt litla dýrinu þar sem litla frænkan (töluvert minni en dýrið) var heimsótt við mikla gleði gestgjafanna. Þar var boðið upp á ís og snakk og allskyns nammi og var það mjög hressandi í alla staði.
Sunnudagurinn fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum (aðallega vegna þess að frúin svaf ekki nægilega vel þarna um nóttina).

föstudagur, júlí 11, 2003

9 dagar í herrann (og alltaf styttist biðin, jei)

Litla dýrið sveik frúna í gær og bar við félagslegum skyldum við klúbbinn sinn. Það var svosem ekkert sérstaklega svekkjandi í ljósi þess að frúin á við magavandamál að stríða þessa dagana og getur lítið sett ofan í sig nema í fljótandi formi (og líka vatsmelónur, mmmmmmm).

Annars er plan kvöldsins (sem klikkar örugglega eins og allt annað þessa dagana) að hitta Norðlendinginn, sem er loksins að sýna andlit sitt í Das Kapital eftir tveggja mánaða fjarveru.
Áfengar veigar verða um hönd hafðar og partýlíf höfuðborgarinnar mun taka á sig nýjan svip þegar The Gells mæta þangað uppstrílaðar.

Á morgun er spáð rigninu í Húsafelli og því mun áætlaðri ferð þangað sennilega frestað. Í staðinn mun frúin gera tilraun II í að fá dýrið í mat og bíó *krossa putta*.

Sunnudagurinn... Já, sunnudagurinn. Hvað með hann? Ætli það verði þá ekki bara kíkt á litlu frænku, sem er nýkomin heim frá "Portúgali", og jafnvel reynt að skrúbba mesta skítinn í los appartementos.

Sjáum til hvernig planið stenst. Frúin telur líkurnar á því að það bregðist svona 90%.

fimmtudagur, júlí 10, 2003

10 dagar í herrann (sem er í raun bara rétt rúm vika).

Frúin er frekar þreytt í dag, enda hrjá hana svefnerfiðleikar þessa dagana, svo vægt sé til orða tekið.
Í kvöld ætlar hún þó að lyfta sér upp með því að fá litla dýrið í heimsókn/dinner og fara svo í bíó. Jei...
Langt síðan bíóferð var á dagskrá!

Í gær tók frúin upp veskið og gubbaði út fyrir einum miða á stórsöngleikinn Grease með hinum frábæra Jóni Jósep og hinni seiðmögnuðu Birgittu í aðalhlutverkum (svo stórt sé til orða tekið).
Tilhlökkun umvafði frúnna, enda ekki á hverjum degi sem leikhúsin eru heimsótt, þangað til upphæðin (kr. 3.250) var tilkynnt. Djö... verð er á þessu, en vonandi þess virði þegar upp verður staðið.

Annars er mikið að gera í vinnunni hjá frúnni og eftir hádegi bíður hennar spennandi verkefni, sem hún getur ekki greint frá hér og nú vegna þagnarskyldu. Hahahah

miðvikudagur, júlí 09, 2003

11 dagar í herrann.

Rannsóknin í dag gekk ágætlega og má gera ráð fyrir niðurstöðum í fyrsta lagi á föstudag, en sennilega dregst það eitthvað lengra þó.

Frúin er frekar "sloj" eftir þetta vesen og hyggst "hygge sig" undir sæng í allt kvöld og reyna að hvíla sig doldið eftir eril undanfarinna daga.

Annars er lítið af klakanum að frétta og frúin segir bless.

þriðjudagur, júlí 08, 2003

12 dagar í herrann.

Það varð nú ekki mikið úr golfferð í gær sökum veðurs, enda rigndi sem aldrei fyrr hér í höfuðborginni.
Frúin fór því snemma heim á leið úr matarboði foreldra og lagðist undir sæng þar sem Vesturálman var tekin föstum tökum - reyndar frekar slappur þáttur í gær, svona miðað við ...
Svefn var reyndur í kjölfarinu - kl. 22.00 - en fréttamönnum RÚV tókst aldrei þessu vant ekki að svæfa frúna, þrátt fyrir átakanlega mikla þreytu.
Nú jæja, þá var auðvitað bara gripið í Potter og sú magnaða bók lesin til agna. Leið svo og beið og klukkan var farin að nálgast nónbil ískyggilega mikið þegar frúnni tókst loks að festa svefn.

Í dag er svo stefnan sett á rækt og slender, jafnvel ljós ef ræktin gengur hratt fyrir sig. Það er nefninlega lífsspursmál að frúin verði dugleg að rækta sig í dag vegna þess að á morgun fer fram rannsókn á hnénu slæma - þessu hné djöfulsins sem frúin áttar sig engan veginn á hvers vegna hún fékk úthlutað.

En þriðjudagsheitið verður þetta: Sofna fyrir miðnætti.

mánudagur, júlí 07, 2003

13 dagar í herrann (jafnvel bara 12 ef maður tekur daginn í dag og komudaginn ekki með).

Nújæja. Helgin var ágæt hjá frúnni. Föstudagskvöldi var eitt í góðra vina hópi með góðum mat og góðu víni - og frábæru atviki sem varðar árar og lítinn bát.
Laugardagur var einnig til lukku og fór að mestu í afslöppun og lestur góðrar (og ódýrrar) bókar, auk þess sem frúin fékk frítt fæði hjá tengdaforeldrum sínum.

Sunnudaginn notaði svo frúin í svona quality-time með familíunni enda ekki nema tveir dagar í brottför þeirra út í óvissuna (eða þannig, Ítalía í svona 10 skipti).

Í dag er svo stefnan sett á að sinna litla bróður frúarinnar og skella sér með honum í golf - ef veður leyfir. Það mun verða gert - ef veður leyfir - eftir vinnu, æfingu, slender, ljós og dinner hjá foreldrum.

föstudagur, júlí 04, 2003

16 dagar í herrann.

Í kvöld stefnir frúin á að ráðast (ekki óboðin þó) inn í sumarbústað hjá nýgiftum vinahjónum.
Hvort frúin ratar þangað er svo allt annar handleggur.

Lagt verður af stað með litla dýrinu eftir vinnu - þegar verslunarleiðangri og öðrum slíkum nauðsynjum er lokið.

Svo er það bara sveitarsælan.

fimmtudagur, júlí 03, 2003

17 dagar í herrann.

Þetta er alveg að koma.